Möttulstrókur er uppstreymisvæði bergkviku í möttlinum. Jarðskorpan bungar upp yfir þessu svæði. Möttulstrókur myndast í iðrum jarðar. Þessi fyrirbæri eru öflugir, staðbundnir uppstreymisstaðir sem ná djúpt niður í möttulinn. Heitt efni (fast efni sem er um 200° heitara en umhverfið) myndar möttulstrókinn, en vegna hitans er strókurinn eðlisléttari og því rís jarðskorpan yfir stróknum ofar en jarðskorpan í kring (um 5-40 km).