Heitir reitir kallast þau svæði á yfirborði jarðar þar sem undir eru öflugri möttulstrókar en gengur og gerist. Þar er jafnan óvenju mikill jarðhiti og eldvirkni. Um 50 heitir reitir eru þekktir, helstir þeirra eru Hawaii, Íslands og Yellowstone reitirnir.
Fyrirbærinu var fyrst lýst af kanadíska jarðvísinda og jarðfræðingnum John Tuzo Wilson í flekakynningu hans árið 1963, þar sem hann hélt fram að eldfjallakeðjur eins og Hawaiieyjar mynduðust sökum þess að jarðflekar færðust yfir fastan punkt (heitan reit) á löngum tíma á jarðsögulegum mælihvarða.