Mörk milli jarðskorpufleka kallast flekamót. Stærð flekanna breytist stöðugt, sumir stækka á meðan aðrir minnka. Þetta ferli á sér stað við flekamót sem eru einkum á hafsbotni eða við jaðra meginlanda. Þegar flekar reka í sundur kallast það fráreksbelti. Samreksbelti eru þau svæði þar sem flekar hreyfast á móti hvor öðrum. Ef að meginlandsskorpa mætir hafnbotnsskorpu myndast niðurstreymisbelti þar sem eðlisþyngri hafsbotnsskorpan skríður undir meginlandsskorpuna.